Ferðamönnum á Íslandi hefur fjölgað á síðustu árum og íslenska efnahagskerfið hefur notið þess. Milli áranna 2016 og 2017 jókst ferðamennska um 24,1% og árið 2017 komu rúmalega 2 milljónir ferðamanna til landsins. Til samanburðar má geta að árið 2011 komu 560 þúsund manns að heimsækja Ísland.
Fólk ferðast um heiminn til að kynnast nýjum hlutum sem það þekkir ekki frá eigin landi. Margir ferðamenn sem koma til Íslands langar að sjá alla þá náttúrufegurð sem landið hefur að geyma. Þessi náttúrufyrirbæri eru t.d fossar, jöklar, miðnætursólin, norðurljósin, jarðhituðu laugarnar og margt fleira. Ferðamennirnir sækjast eftir öðruvísi upplifun en þeir eru vanir, einhverju sem þeir geta komið heim og sagt frá. Sumir hafa mikinn áhuga á sögu landsins aðrir vilja kynnst fámenninu, óspilltu náttúrunni, hreina vatninu og enn aðrir vilja sækja hátíðir eins og Gay pride, Secret Solstice og Airwaves.