Frá upphafi til dagsins í dag
Upphaflega voru minjagripir minjar sem fólk sótti sér frá ýmsum helgum og sögulegum stöðum eins og barmmerki og smáhluti úr viði. Fólk vildi sjá til þess að það gleymdi aldrei ferð sinni til helgra og merkilegra staða og fékk sér því hluti sem það gat tengt við ferðalagið. Það vildi einnig geta sýnt öðru fólki hvert það hafði ferðast því það var merkilegt að hafa ferðast til margra staða. Smám saman opnuðu litlar verslanir á þessum stöðum sem seldu minjagripi eins og við könnumst við þá í dag. Þegar ferðamennska jókst opnuðu fleiri búðir og um allan heim var hægt að kaupa vandaðann varning og lítil listaverk. Skeiðar merktar áfangastöðum og póstkort urðu seinna geysivinsæl og hægt er að segja að minjagripaæði hafi gripið um sig í fyrsta skipti.
Skeiðarnar voru upphaflega frá Evrópu og fólk sem ferðaðist mikið keypti sér gjarnan skeiðar og safnaði þeim. Um miðja 19. öld nutu skeiðarnar mikilla vinsælda í Evrópu og árið 1889 voru fyrstu skeiðarnar framleiddar í Bandaríkjunum í tilefni af því að 100 ár voru frá því að George Washington var kjörinn forseti Bandaríkjanna. Eftir það greip um sig mikið æði um minjagripaskeiðarnar og fólk um allan heim var æst í að safna þessum skeiðum. Eftir fyrri heimstyrjöldina minnkuðu þó vinsældirnar en það er vissulega hægt að segja að þetta hafi verið fyrstu minjagripirnir sem vinsælt var að safna. Skeiðarnar voru vandaðar og gerðar úr silfri, nikkel, stáli og jafnvel í sumum tilfelllum úr viði. Þær voru með myndum af löndum, ferðamannastöðum, frægu fólki frá landinu og skjaldamerkjum.Skeiðarnar voru fyrstu vinsælu minjagripirnir sem voru seldir í verslunum um allan heim.