Ferðamenn vilja gjarnan eignast minjagripi sem minna þá á ferðalagið og til að sýna hvert þeir hafa ferðast. Í dag er til fjöldinn allur af minjagripum. Til eru bollar, bolir, seglar, póstkort og margt fleira sem sem minna okkur á áfangastaði en oft kaupa margir eitthvað sem tengist menningu landsins sem dvalist var í. Minjagripur er eitthvað sem minnir okkur á upplifun og þeir hafa oft einhverja dýpri merkingu fyrir hvern einstakling.
Lengi hefur fólk tekið með sér hluti frá áfangastöðum sem minna það á eitthvað. Allmargir ferðamenn stunda það að safna minjagripum svo sem seglum, lyklakippum og öðru slíku sér til skemmtunar. Verð á minjagripum getur verið mismunandi og það er hvorki lágmark né hámark á hvað minjagripur á að kosta. Það fer allt eftir því hve stór hann er, úr hvernig efni, hvort hann sé handgerður eða framleiddur í verksmiðju og fleira. Hluturinn sjálfur hefur hins vegar mismunandi gildi og er mis verðmætur fyrir fólk. Án tengingu eigandans við hlutinn er verðmæti óljóst. Í mörgum löndum tíðkast það að koma heim með minjagripi til að gefa fjölskyldu og vinum. Í Japan er það talin skylda að koma heim með minjagrip eða omiyage eins og þeir kalla það, handa fjölskyldu, samstarfsfélögum og vinum sem afsökun fyrir langa fjarveru.