Við fórum í nokkrar minjagripaverslanir á Laugaveginum og spurðumst fyrir hvaða hlutir væru vinsælastir í búðunum. Við tókum saman þennan lista yfir hvað ferðamenn eru helst að kaupa í minjagripaverslunnum hér á landi. Vörurnar eru misdýrar og gæðin ekki þau sömu hjá öllum vörunum en eiga það þó sameiginlegt að tengjast Íslandi á einn eða annan hátt.
SmámunirLitlir minjagripir eins og seglar og póstkort eru afar vinsælir hjá ferðamönnum sem heimsækja Ísland. Það er mjög vinsælt að safna þessum hlutum og þeir eru einnig frekar ódýrir og passa auðveldlega í vasa. Eru oft framleiddir í Asíu.
|
SúkkulaðiFerðamenn eru veikir fyrir íslensku súkkulaði. Allt súkkulaði hvort sem það er Nói Síríus eða Omnom bregst aldrei. Ekki skemmir fyrir að umbúðir Omnom súkkaulaðisins eru einstaklega fallegar.
|
LopiAllt úr lopa er mjög vinsælt, allt frá vettlingum yfir í lopapeysur. Lopapeysur eru minjagripir í dýrarai kanntinum en eru mjög hlýjar, fallegar og nytsamlegar. Það er líka mjög margir sem kaupa lopa til að prjóna úr.
|
KeramikAllskonar keramik eftir íslenska listamenn er eftirsóknarvert meðal ferðamana. Oftar en ekki er keramikið með íslensku hrauni á eða með einhverju sem tengist landinu á.
|
HornHorn eru núna orðin vinsælli og margir tengja þau við vinsælu þættina "Game of Thrones" og íslenska víkinga.
|
Salt
Íslenska saltið er alltaf mjög vinsælt og mörgum finnst gott að kaupa eitthvað sem hægt er að nýta. Ferðamönnum finnst áhugavert að nýta hraun og ekta íslenskar plöntur í saltið sem er einnig úr íslenskum sjó.
|
Lost in Iceland Ljósmyndabókin ,,Lost in Iceland” eftir Sigurgeir Sigurjónsson er vinsælasta túristabókin, en hún inniheldur myndir af okkar fagra landslagi og náttúru. Hjá myndunum er einnig nákvæm staðsetning þar sem myndin var tekin, sem er bæði skemmtilegt og þægilegt ef þú ert að ferðast. Setningin lost in Iceland hefur einnig verið rosalega vinsæl á bolum og bollum.
|