Í þessu verkefni könnuðum við hverskonar minjagripi fólk vildi helst kaupa sér og hvað einkenndi hinn fullkomna minjagrip hjá fólki. Við athuguðum einnig hvernig munur væri á óskum fólks tengdum minjagripum eftir þjóðerni, kyni, aldri og fleira. Þegar við skoðuðum niðurstöðurnar sáum við hvað var vinsælast bæði hjá Íslendingum og erlendum ferðamönnum. Út frá niðurstöðunum höfum við búið til hinn fullkomna minjagrip.
Við fórum einnig niður í miðbæ Reykjavíkur og töluðum við nokkra ferðamenn sem voru á gangi. Við spurðum þá frá hvaða landi þeir væru, hvort þeir myndu kaupa minjagrip og hvað hann ætti að kosta. Fyrir tilviljun voru flestir sem við spurðum frá Bandaríkjunum og Kanada. Ferðamennirnir sögðust ferðast mikið eða um það bil 2-3 sinnum á ári að meðaltali og flestir sögðust vilja kaupa sér minjagrip hér á Íslandi. Þeim fannst minjagripirnir frekar dýrir á Íslandi en það var bara einn sem ætlaði ekki að kaupa sér minjagrip af þeirri ástæðu. Flestir létu verðið ekki stoppa sig og margir sögðust vera viljugir til að versla minjagripi fyrir um alls 50-100 bandaríska dollara. Það var vinsælt hjá þeim sem við spurðum að kaupa eitthvað sem hægt var að borða eins og nammi eða salt en það var líka mjög vinsælt að vilja segla. Það voru mjög fáir sem söfnuðu minjagripum en margir sögðust vera að kaupa fyrir fjölskyldu og vini. Eftir að við höfðum spurt ferðamennina sáum við nokkur skýra mynd af hinum fullkomna minjagrip fyrir ferðamenn á Íslandi. Fólk vildi hlut sem hægt var að nýta eins og matvæli og smjög mörgum leyst vel á súkkulaði frá Íslandi. Það var einnig mikilvægt að hluturinn væri vandaður og búinn til á Íslandi og þess vegna ákváðum við að búa til súkkulaði öskju með mismunandi tegundum af súkkulaði sem tengdist Íslandi á einhvern hátt.
Hvers skonar minjagrip myndir þú helst vilja kaupa?(til ferðamanna)