Út frá niðurstöðum kannananna bjuggum við til súkkulaði sem við framleiddum sjálfar og settum í fallegar öskjur sem við gerðum einnig. Við vildum að súkkulaðið hefði eitthvað sem tengdist Íslandi á einhvern hátt og ákváðum að gera fjórar mismunandi bragðtegundir.
Fyrsta tegundin sem við ákváðum að gera var súukulaði með ristuðum birkilaufum sem við týndum sjálfar og rabbarbaramauki sem við gerðum frá grunni. Okkur fannst við þurfa að gera allavega eina tegund með íslenskum jurtum og rabbarbarinn og birkið eru einar þekktustu plöntur sem við Íslendingar höfum notað lengi í matreiðslu og fleira. Plönturnar eru einnig einstaklega fallegar og bragðgóðar. Önnur tegundin sem við ákváðum að gera var súkkulaði með heimagerðri saltkaramellu og íslensku sjávarsalti. Það er alltaf vinsælt að borða súkkulaði með karamellu sem er einstaklega bragðgóð. Íslenska sjávarstaltið gefur súkkulaðinu smá íslenskan undirtón og gefur gott bragð. Við vildum einnig gera súkkulaði sem var einungis með viðbættu sjávarsalti. Við ákváðum að það væri gott að hafa eina tegund frekar látlausa og einfalda en samt sem áður einstaklega góða. Síðasta tegundin var súkkulaði með lakkrís. Af því að hvaða Íslendingur er ekki brjálaður í lakkrís.

Við ákváðum að gera súkkulaðið alveg frá grunni eftir að hafa reynt að fá styrk hjá súkkulaðiverksmiðjum en þeim beiðnum var hafnað. Til að búa til súkkulaði frá grunni þarf kakósmjör, kakó, flórsykur, mjólkurduft og smá salt. Við bræddum kakósmjör og skiptum því síðan í þrjár skálar til að gera mismunandi gerðir af súkkulaði. Við settum mismunandi magn af kakói, flórsykri og mjólkurdufti til að gera ýmist dökkt, ljóst og hvítt súkkulaði.
Fyrir dökka súkkulaðið - blönduðum við 2 matskeiðum af kakó, 2 matskeiðum af flórsykri og smá salti saman við kakósmjörið
Fyrir mjólkursúkkulaðið - blönduðum við 1 matskeið af kakó, 2 matskeiðum af flórsykri, 2 teskeiðum af mjólkurdufti og smá salti saman við kakósmjörið
Fyrir hvíta súkkulaðið - blönduðum við 2 matskeiðum af flórsykri, 3 matskeiðum af mjólkurdufti og smá salti saman við kakósmjörið

Við gerðum einnig saltkaramellu og í það þarf maður sykur, rjóma, smjör og sjávarsalt.
Fyrst byrjuðum við á því að bræða sykur í potti og bættum smjörinu við. Þegar sykurinn og smjörið höfðu blandast vel saman bættum við rólega rjóma við sykurinn og smjörið. Við hrærðum vel saman og leifðum því að sjóða þangað til blandan náði fallegum gylltum karamellu lit. Að lokum bættum við smá sjávarsalti við.

Fyrir súkkulaðið með íslensku jurtunum, rabbabaranum og birkinu ákváðum við að sjóða rabbabarann með sykri og gera rabbabaramauk og skreyta síðan með birkilaufum og rabbabara. Við vorum vongóðar að þetta bragðaðist vel og vonuðum að rabbabarinn skemmdist ekki sem hann gerði ekki.
Ef við værum að koma þessu súkkulaði sem vöru á markað þyrftum við að fá leyfi fyrir því frá ýmsum aðilum. Það þarf til dæmis að sjá til þess að hreinlæti þar sem varan er framleidd sé í góðu lagi og að í henni séu engin skaðleg efni. Svo þarf ýmis formleg leyfi svo fyrirtækið sem framleiðir vöruna geti starfað. Ef við vildum selja þessa vöru og græða eitthvað á henni, þarf að reikna út hvað varan kostar í framleiðslu og sjá hvað við getum hagnast mikið á vörunni, en á sama tíma þarf að gæta þess að varan sé á góðu verði svo að einhverjir vilji kaupa hana. Eftir að við reiknuðum út hvað allt hráefnið kostaði til þess að búa til eitt box af súkkulaðinu, töldum við hvað það hafði tekið okkur langan tíma að gera súkkulaðið. Þá sáum við hvað við gátum látið vöruna kosta.
Það kostar um það bil 703 kr að búa til eitt box af súkkulaði með öllu sem í það fer eins og pakkningu, hráefnum og fleira. Síðan kostar að auglýsa vöruna og fá öll leyfin til koma henni í búðir. Það tekur auðvitað mikinn tíma að búa til þetta súkkulaði alveg frá grunni og allt sem tilheyrir því. Þar sem þetta er allt handgert og ekki framleitt í verksmiðju höfum ákveðið að selja hvert box á 2.000kr og þá fáum við 1.300kr í gróða á hvert box. Það er ekki mikið miðað við hversu tímafrekt þetta er en ef maður væri að fara stofna fyrirtæki myndi maður hafa betri áætlanir um hvernig hægt væri að búa til fleiri súkkulaði á skemmri tíma. Mörg lítil fyrirtæki eiga erfitt með að verða að þekktu fyrirtæki því það tekur tíma að mynda hinu réttu mynd fyrir vöru sem er lítið sem ekkert þekkt meðal almennings.
Þegar selja á vöru er mikilvægt að auglýsa hana vel svo að fólk viti að hún sé til. Nú til dags eru samfélagsmiðlar stór og mikilvægur hluti af lífi fólks. Þess vegna ákváðum við að stofna Instagram aðgang fyrir súkkulaðið okkar. Þegar maður skoðar Instagram aðganginn sér maður ákveðna stemmingu sem er í kringum súkkulaðið. Ef stemmingin er góð vill fólk gjarnan upplifa sömu stemmingu og smakka þess vegna súkkulaðið og kaupa það. Það skiptir mjög miklu máli að litasamsetningin á síðunni sé flott, gæðin á myndunum og uppstyllingin á hlutunum sé falleg vegna þess að maður vill gjarnan kaupa eitthvað sem er fallegt í útliti. Við merktum myndirnar okkar með ákveðnum myllumerkjum svo að fólk ætti auðveldara með að rekast á súkkulaðið okkar þegar það skoðaði Instagram. Myndirnar á síðunni sýna hvernig súkkulaðið er og hvernig fyrirtækið vill vera.

Okkur fannst mikilvægt að gera instagram fyrir vöruna okkar til að kynna hana fyrir almenningi. Við byrjuðum á því að sækja okkur forritið Planoly sem gerði okkur kleift að setja upp myndirnar eins og við vildum á fallegan og þæginlegan máta. Þann 29. maí póstuðum við fyrstu myndunum á instagram aðganginn okkar og fengum strax mjög góðar undirtektir og fengum like á fyrstu mínútunni. Við vorum ekki búnar að fá neina fylgjendur né setja texta í bio-ið eða prófíl mynd á aðgangnum okkar. Þess vegna kom þetta okkur mjög á óvart. Við höfðum sett nokkur myllumerki í fyrirsagnirnar undir myndunum eins og #chocolate #sunnypuffinchocolates #food #aesthetic og einnig settum við Reykjavík, Iceland sem staðsetningu á myndirnar. Út af myllumerkjunum og staðsetningunni sem við settum á myndirnar hefur fólk fundið myndirnar okkar og þær vakið athygli fólks á vörunni. Þegar maður gerir instagram eða notar aðrar aðferðir til að auglýsa vöru er mikilvægt að fyrirsagnirnar séu vel orðaðar og dragi athygli að vörunni.